Brim hf. og dótturfélagið Ögurvík ehf. gera út átta fiskiskip og vinna fiskafurðir í Reykjavík, á Akranesi, á Vopnafirði og til sjós. Félagið hefur mestar aflaheimildir íslenskra útgerðarfélaga og rekur eigið sölu- og markaðsstarf sem selur afurðirnar um heim allan. Með reynslumiklu og hæfu starfsfólki er lögð áhersla á ábyrga umgengni til sjós og lands og gæði afurða.
Í skipastól samstæðunnar í árslok eru þrír frystitogarar, þrír ísfisktogarar og tvö uppsjávarskip.
Á árinu 2019 var afli botnfiskskipa félagsins 51 þúsund tonn og uppsjávarskipa 89 þúsund tonn.
Ársreikningur Brims hf. er saminn í evrum. Meðalgengi evru hækkaði úr 127,37 í 136,92 eða um 7,5% milli áranna 2018 og 2019. Frá árslokum 2018 til ársloka 2019 hækkaði gengi evru úr 132,86 í 135,45 eða um 1,9%. Olíuverð í Bandaríkjadölum lækkaði að meðaltali um 8,0% milli ára.
Ársreikningur samstæðunnar fyrir árið 2019 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Brims hf. og dótturfélaga þess.
Rekstrartekjur Brims hf. árið 2019 námu 271,2 m€ samanborið við 210,7 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og án söluhagnaðar (EBITDA) var 63,9 m€ eða 23,6% af rekstrartekjum en var 36,8 m€ eða 17,5% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 4,6 m€ en voru neikvæð um 4,0 m€ á sama tíma árið áður.
Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 1,6 m€ en voru jákvæð um 17,0 m€ árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 43,4 m€. Tekjuskattur að fjárhæð 9,5 m€ er reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum. Samstæðan mun greiða tekjuskatt að fjárhæð 8,7 m€ á árinu 2020 vegna rekstrarársins 2019. Hagnaður samstæðunnar varð því 34,0 m€ en var 32,2 m€ árið áður.
Meðalfjöldi ársverka árið 2019 var 798 en var 773 árið áður. Laun og launatengd gjöld námu samtals 76,6 m€ en námu árið áður 70,8 m€ (10,5 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 9,0 milljarða króna árið áður).
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Seldar vörur | 4 | 271.196 | 210.696 |
Kostnaðarverð seldra vara | (197.369) | (167.902) | |
Vergur hagnaður | 73.827 | 42.794 | |
Aðrar rekstrartekjur | 6 | 214 | 12.345 |
Útflutningskostnaður | (10.420) | (10.855) | |
Annar rekstrarkostnaður | 10 | (14.044) | (14.146) |
Rekstrarhagnaður | 49.577 | 30.138 | |
Fjáreignatekjur | 466 | 438 | |
Fjármagnsgjöld | (6.388) | (5.870) | |
Gengismunur | 1.306 | 1.432 | |
Fjáreignatekjur og fjármagnsgjöld samtals | 12 | (4.616) | (4.000) |
Áhrif hlutdeildarfélaga | 17 | (1.552) | 16.967 |
Hagnaður fyrir tekjuskatt | 43.409 | 43.105 | |
Tekjuskattur | 13 | (9.451) | (10.882) |
Hagnaður ársins | 33.958 | 32.223 | |
EBITDA | 63.906 | 36.773 | |
Hagnaður á hlut | |||
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut | 23 | 0,019 | 0,018 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Hagnaður ársins | 33.958 | 32.223 | |
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | |||
Liðir sem síðar munu verða endurflokkaðir yfir rekstur: | |||
Þýðingarmunur vegna eignarhluta í félögum | 466 | 1.177 | |
Áhættuvarnir vegna langtímaskulda | 22 | (335) | (728) |
Heildarafkoma ársins | 34.089 | 32.672 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Heildareignir samstæðunnar námu 700,7 m€ í árslok 2019. Þar af voru fastafjármunir 549,5 m€ og veltufjármunir 151,2 m€. Í árslok námu heildarskuldir samstæðunnar 383,3 m€ og eigið fé nam 317,4 m€. Eiginfjárhlutfall var því 45,3% en var 41,9% í lok árs 2018.
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 14 | 169.224 | 196.198 |
Rekstrarfjármunir í smíðum | 15 | 51.045 | 39.343 |
Óefnislegar eignir | 16 | 297.997 | 282.332 |
Eignarhlutur í hlutdeildarfélögum | 17 | 28.839 | 29.083 |
Aðrar fjárfestingar | 18 | 2.399 | 3.107 |
Fastafjármunir | 549.504 | 550.063 | |
Birgðir | 20 | 59.768 | 35.410 |
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 21 | 37.931 | 30.071 |
Kröfur á tengda aðila | 33 | 0 | 13.243 |
Handbært fé | 53.497 | 38.279 | |
Veltufjármunir | 151.196 | 117.003 | |
Eignir samtals | 700.700 | 667.066 | |
Eigið fé | |||
Hlutafé | 19.913 | 19.325 | |
Yfirverðsreikningur | 54.298 | 37.743 | |
Þýðingarmunur | 2.817 | 2.351 | |
Annað bundið eigið fé | 36.230 | 27.899 | |
Óráðstafað eigið fé | 204.106 | 192.167 | |
Eigið fé | 22 | 317.364 | 279.485 |
Skuldir | |||
Vaxtaberandi skuldir | 24 | 249.780 | 187.687 |
Tekjuskattsskuldbinding | 25 | 71.465 | 70.593 |
Langtímaskuldir | 321.245 | 258.280 | |
Vaxtaberandi skuldir | 24 | 28.504 | 112.431 |
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 26 | 22.688 | 16.153 |
Skuldir við tengda aðila | 2.232 | 0 | |
Skattar ársins | 25 | 8.667 | 717 |
Skammtímaskuldir | 62.091 | 129.301 | |
Skuldir | 383.336 | 387.581 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 700.700 | 667.066 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Handbært fé frá rekstri nam 56,7 m€ á árinu 2019 en var 32,8 m€ árið áður. Fjárfestingar námu 27,1 m€. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 68,6 m€. Handbært fé hækkaði því um 15,2 m€ og var í árslok 53,5 m€.
Skýr. | 2019 | 2018 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Rekstrarhagnaður ársins | 49.577 | 30.138 | |
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
Afskriftir og virðisrýrnun rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna | 14.543 | 18.980 | |
Hagnaður af sölu eigna | (214) | (12.345) | |
63.906 | 36.773 | ||
Breytingar á rekstrartengdum eignum | 2.450 | 2.318 | |
Breytingar á rekstrartengdum skuldum | (2.926) | 308 | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (476) | 2.626 | |
Innheimtar vaxtatekjur | 466 | 515 | |
Greidd vaxtagjöld | (6.459) | (5.870) | |
Greiddir skattar | (717) | (1.221) | |
Handbært fé frá rekstri | 56.720 | 32.823 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 14 | (7.080) | (6.369) |
Fjárfesting í rekstrarfjármunum í smíðum | 15 | (11.702) | (34.646) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 21.993 | 2.709 | |
Söluverð aflaheimilda | 12.329 | 1.373 | |
Fjárfesting í dótturfélagi að frádregnu handbæru fé | 5 | 0 | (82.352) |
Yfirtekið handbært fé dótturfélaga | 5 | 11.631 | 0 |
Fjárfesting í eignarhlutum | (583) | (546) | |
Greiðslur frá hlutdeildarfélagi | 548 | 24.934 | |
Fjárfestingarhreyfingar | (27.136) | (94.897) | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Greiddur arður | (13.353) | (10.359) | |
Keypt eigin bréf | (13.963) | 0 | |
Skammtímalán | (101.582) | 61.161 | |
Tekin ný langtímalán | 103.345 | 179.419 | |
Afborganir langtímalána | (43.085) | (147.471) | |
Fjármögnunarhreyfingar | (68.638) | 82.750 | |
Hækkun á handbæru fé | 15.218 | 20.676 | |
Handbært fé í ársbyrjun | 38.279 | 17.603 | |
Handbært fé í árslok | 53.497 | 38.279 | |
Fjárfestingar og fjármögnun án greiðsluáhrifa: | |||
Fjárfesting í dótturfélögum | (31.105) | 0 | |
Hlutafjáraukning | 31.105 | 0 | |
Söluverð aflaheimilda | 0 | 12.329 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2019 (1 evra = 136,92 ísk) verða tekjur 37,1 milljarður króna, EBITDA 8,8 milljarðar og hagnaður 4,7 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2019 (1 evra = 135,45 ísk) verða eignir samtals 94,9 milljarðar króna, skuldir 51,9 milljarðar og eigið fé 43,0 milljarðar.